miðvikudagur, október 15, 2008

Ætli sálin sé til sölu, þá á ég ekki við hljómsveitina.

Ég var að fá tilboð í allar samvisku ákvarðanir mínar næstu 15-20 árin.
  
Ég þarf bara að skrifa undir samning, fá fullt af peningum og hver einasta ákvörðun sem ég tek næstu 15-20 árin er í höndunum á einhverjum sem kallar sig Mammon.  Ég hef ekki miklar áhyggjur, hann hefur góða ferilskrá.  

Eitt sinn bjargaði hann meira að segja mjög hungraðri konu með því að finna fyrir hana næringaríkt epli.  Hann er í raun ástæðan fyrir því að heimurinn var þrifinn fyrir einhverjum árum síðan.  

Virðist vera helvíti fínn gaur.  

Hvað eru líka 15-20 ár milli vina?  

Hvað er það versta sem getur gerst?  Hann fer ekki að láta mig gera eitthvað sem er gegn mínum hagsmunum?  Er það? Hvað ef hans hagsmunir og mínir hagsmunir fara ekki saman?

Æ ég verð að hætta þessari paranoiu, það er ekki eins og ég sé að selja raforkuver eða gefa út álversleyfi.   

Ég er ekki það ruglaður.....

.  


Engin ummæli: