Ég er bara ekki að átta mig á þessu. Af hverju er ekki komin pilla. Taktu eina og þú ert endurnærður í þrjú ár. Hvar eru læknavísindin þegar ég þarf að vaka lengur en til 22:00.
Nei sjálfsagt of upptekknir að spila sig stóra við skurðarborðið eða í fyrirlestri.
Við erum vísindamenn!!!
Við þurfum sko ekki vísindamenn þegar við höfum Þingmenn...Þingmenn geta frætt okkur um allt frá sköpun jarðar til eyðingu hennar.
Ef einhver vill vita hvernig heimurinn varð til þá þarf hann ekki annað en að fylgjast með Þingmönnum til að sjá það.
Heimurinn átti nefninlega að fara í lakið.
Heimurinn er slys sem gerir sér ekki grein fyrir tilgangsleysi sínu og heldur áfram í þeirri veiku von að aðrir heimar vilji vera memm.
Ég vildi óska að móðir heimsins hefði misst hann í gólfið þegar hann var lítill. Þá væri allvega þessi vitleysingur sem er við stjórnvölinn með löggilda afsökun.
Það er eitthvað svo óhuggulegt við það að menn séu bara svona.. heimskir..
fimmtudagur, október 23, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli