miðvikudagur, október 15, 2008

Brown is not my color

Það er einhvern veginn eins og hann klessist utan í allt og alla.  Reynir alltaf að troða sér þar sem maður vill helst ekki sjá hann s.s. aftan á sitjandann eða neðst á buxnaskálmina.  

Maður sér hann ekki alltaf, því hann getur bara ráðist á ákveðna liti.  Helst varnarlausa liti með allt of mikið sjálfsálit.  Hvítur er til að mynda kjörinn litur til að ofsækja.  Alls ekki stofna útibú hvítra hjá brúnum.  Brúnn gæti beytt sértækum aðgerðum, hreinlega sett þá í aflitun bara svo að  brúnn líti betur út.


Lítil furða að hægðir eru brúnar

Engin ummæli: