föstudagur, október 17, 2008

Lifi byltingin

Ég ætla að mæta fyrir framan þetta steinhús og mótmæla, með öllum hinum 20 íslendingunum sem auðvitað endurspegla vilja þjóðarinnar. Við höfum valdið í hendi okkar. Við erum vilji fólksins.

Ísland úr Nató, Björninn burt.

Það er ráðamönnum til happs hvað fjöldin er sneiddur allri rökhugsun.

Hvenig annars er hægt að útskýra þessa rúmlega 60 vitleysingja sem eru að þinga fyrir okkur.

Ísland úr Nató, Ísbjörninn burt.

Mótmæli munu skila tilætluðum árangri á sama tíma og bloggskrif breyta heiminum.
Þessi bylting hefst á einu skrefi íklæddur 29.000 krónu skóm og endar í moldarkofa.

Ísland úr Nató og útlendingana burt.

Við endum eins og þriðja ríkið? Davíð öskrandi í neðanjarðarbyrginu sínu Philip Green fær ekki Baug fyrir 5%. Sókn er besta vörnin kaupum Bretland.

Ísland uber alles.

Hálshöggvum aðalinn og þjóðnýtum lestarkerfið þeirra, þær eru aldrei á tíma.

Indland næst.

Engin ummæli: