Ég styð eftirlaunafrumvarpið ef einhver drullast á eftirlaun
Ég styð þingmenn í því að lesa Animal Farm
Ég styð Range Rover ef þeir sem eiga þá keyra á þeim úr landi
Ég styð æfilangt kvef á auðmenn (skilgreining: auðmenn eru allir þeir sem eru ríkari en ég get orðið).
Ég styð 60% skatt á fjármuni sem á að flytja úr landi
Ég styð ríkisfangelsi í vestmannaeyjum fyrir hvítflippa
Ég styð bann við sykri, alla daga nema laugardaga.
Ég styð hátekjuskatt á allar tekjur umfram 1. milljón
Ég styð afnáms tekjutengingar í allri birtingarmynd hennar
Ég styð afnám verðtryggingar í hvaða formi sem hún hefur birst
Ég styð skattlagningu á þá sem reyna að komast hjá því að greiða skatta með stofnun ehf.
Ég styð bann við yfirdrætti, vísa, greiðsludreifingu og lánum yfir höfuð. .
....nei annars... mig langar í heitan pott... við höldum kanski vísa og greiðsludreifingum en annað má fara.....þangað til annað er ákveðið af mér.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli