13 í dag.  Sem þýðir samtals 60 í vikunni.........nú er það tveggja daga pása. 
Hnéin aðeins farin að láta vita af sér, auk smá bakverkja.  Enda búinn að taka 204 km í febrúar + 78 í janúar sem er helvíti góð aukning.
Þarf að fara að lyfta og styrkja mig á næstunni.  Þó ekki fyrr en ég hef náð niður fyrir 90 kílóa markið.
Þetta þýðir í raun að ég hef brent um 34000 kaloríum.  Svo er það bara spurning hvað ég er búinn að éta margar kaloríur.
við sjáum til á morgun.  Þá er stóridómur
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli