If you smile at my I will understand Cause that’s what everybody does in there own language
Ég veit ekki um aðra ég veit aðeins um sjálfan mig og það sem mér hefur dottið í hug. Ég veit það sem ég hef hugsað en aldrei framkvæmt á náunganum sem gert hefur á minn hlut, á stúlkunni sem leit vel út þennan daginn eða á húsgagninu vegna þess að stóratáin rakst í það. Fáránlegir hlutir sem aldrei verða nokkru sinni hafði eftir en í augnablik þá datt mér það í hug og það er nóg. Samt sem áður þá hefur einhver framkvæmt þá, það hefur einhver farið yfir mörk sem menning okkar og venjur svo ég tala nú ekki um okkar siðferðisvitund hafa sagt til um. Við skiljum ekki morð, samt sem áður þá sjáum við réttlætingu á þeim á hverjum degi í sjónvarpinu. “11 ára hryðjuverkamaður var skotinn til bana”. Sama þjóða og notar trúarlegar tilvitnanir þegar þeim hentar til að réttlæta aðgerðir sínar, fremur morð, eyðileggur heimili og brýtur bága við alla alþjóðlega sáttmála sem gerðir hafa verið. Ráðist er á flóttamannabúðir, heimili, bíla, fótgangandi og líf murkað úr fólki. Hin útvalda þjóð hefur valdið meiri harmleik en hún getur nokkru sinni réttlæt fyrir guði og fyrir mönnum. Sama þjóð og hefur fengið að kynnast oki, svipu og þrældóm herjar nú á þjóð sem telur 3 milljónir manna. Hvað er svo talað um sem mikilvægasta þjóðarráðið? Herja þarf stríð á Sadam Husen vegna þess að hann er einvaldur sem níðst á þegnum sínum. Sannanir eru fyrir því að Sameinuðu Arabísku Furstadæmin hafi greitt hryðjuverkamönnum fé. Ekkert gert. Pakistanar hafa innan sinna landamæra þjálfunarbúðir hryðjuverkamanna. Ekkert gert. Ráðist er á Kasmír af hryðjuverkamönnum í hverjum mánuði, umheimurinn kallar á að kúgun Kasmír sé afnuminn. Téténskir “aðskilnaðarmenn” rússar kalla þá hryðjuverkamenn, vestrænir fjölmiðlar kalla þá aðskilnaðarsinna ætli eitthvað sé bogið við aðra hvora fullyrðingu. Sovétríkin eða Sameinaða sambandsríki sósíalísku lýðveldanna eins og það hét á árum áður hefur liðnast í sundur því er nú ver og miður. Ekki vegna falls kommúnismans heldur vegna þess að Bandaríkin hafa í áratugi grafið undan því ríki sem var til upp úr lokum seinni heimstyrjaldarinnar með góðum árangri. Þessi árangur varð til þess að engum nema hugsanlega bandaríkjunum finnst þeir fullkomlega öruggir. Það flaska öryggi kom svo sjálfum þeim um koll. Hryðjuverkamenn, sjálfir segjast þeir vera frelsishetjur sem séu að reyna að bjóða lénsherranum byrgin. Það er nákvæmlega það sem bandaríkin eru Lénsherrar nútímans. Stórkostlegar samsteypur fyrirtækja sem fara um í þeim tilgangi að ræna og rupla aðlindir þjóða, á sem hagkvæmastan hátt fyrir fyrirtækin og þar með með sem skelfilegustu afleiðingum fyrir landið eru í boði USA. Suður Ameríka er nærtækasta dæmið þar hafa lönd eins og Kólumbía og argentína misst allt sitt og ég fullyrði að það er að litlu leiti um að kenna lélegu stjórnarfari en mestu leiti græðgi fyrirtækja. Kólumbía er eitt það auðugasta í veröldinni af veraldlegum gæðum samt sem áður fer mestur auður þar úr landi í formi olíu sem er unnin annarstaðar. Afganir sem bandaríkin hafa barist svo hatramlega gegn undan farið ár fengu þjálfun í búðum, með vopnum, aðstoðaðir af bandarískum leiðbeinendum fjármagnað af bandaríkjamönnum. Hvers vegna (það er vont að skilja þar sem lítið er um auðæfi í afganistan) það litla sem auðæfin snúast um er ólöglegt annarstaðar í heiminum þannig að skilningur margra þver þegar það er rætt. Enda þurfti hryðjuveka árás á bandaríkin til að þeir steyptu stjórninni af stóli. Samt sem áður þá fær einn heimskasti maður sem stigið hefur fæti í forsetastól bandaríkjanna (og af nægu er að taka) fyrr og síðar að stjórna mesta stórveldi allra tíma, maður sem kemst til valda vegna þess að kjördæmaskipanið í hans ríki er jafn fáranlega upp stillt og hér á landi. Hver eru rökin fyrir því að hann sé lýðræðislega kjörinn á þing þegar kjördæmaskipanin er viljandi á þann hátt að það þarf ekki meirihluta atkvæða til að hafa meirihluta á þingi. Jú það var nú alþýðan sem kaus þetta yfir sig. Já alþýðan. Við getum þó allavega sagt hér á landi að meirihluti atkvæðisbærra manna hafi tekið þátt í kosningum og kosið þessa óstjórn yfir sig. En það var ekki einu sinni 50% kjörsókn þegar þessar kosningar fóru fram. Hugsa sér innan við 25% kosningabærra manna kaus mann í valdamesta embætti heims. Sem kemur okkur að því sem ég er að tala um. Siðferðisvitund. Maður sem drap fleiri í sínu fyrra embætti en flestir þjóhöfðingjar heims hafa gert í sinni valdatíð. Hann var fylkisstjóri í Texas þar sem fleiri fangar eru teknir af lífi en í nokkru öðru fylki, fleiri morð voru framin en í nokkru örðu fylki og meira er um glæpi en í nokkru örðu fylki bandaríkjanna. Ólæsi er þar með því mesta sem þekkist í bandaríkjunum. Þannig skildi maðurinn við fylkið eftir að hafa stjórnað því í 8 ár eða hvað það nú var. Maður sem er með orðaforða á við 9 ára og rökhugsun á við 69 ára kapítalista getur ekki verið annað en hættulegur umheiminum og ef hann nær að gersamlega rústa Texas hvað gerir hann við bandaríkin og umheiminn þegar hans 8 ára valdatíð er á enda. Þegar sá aðili sem er talinn vera heilinn á bak við ríkistjórn bandaríkjanna hefur fengið fleiri hjartaáföll en nokkur annar maður í sjúkrasögu bandaríkjanna, þá hlýtur maður að spyrja sjálfan sig hvort ekki verði vondur endi á þessu. Hver eru til að mynda rökin fyrir því að einvaldur í “kirkistan” eða hvað það nú heitir fær að koma á stjórnskipulagi þar sem hans orð eru lög og jafnvel kennd í skólum landsins, að stríð fær að geysa í mörgum ríkjum afríku, að stjórnvöld í Kóreu, Pakistan og Indlandi fá óáreitt að koma upp kjarnorkuvopnum og ekkert gert. Hvers vegna tók það bandaríkjamenn nokkur ár að ákveða að hjálpa “bandamönnum” í fyrri heimstyrjöldinni. Af hverju þurfti mestu árás á bandaríkin í ein 200 ár til þess að þeir tækju upp á því að aðstoða réttsýna gegn fjöldamorðingja frá þýskalandi. Hann þurfti að lýsa hendur á þá til þess að þeir sköruðust í leikinn. Það er ekkert leyndarmál, þetta snýst allt um peninga. Peninga sem ég á ekki eftir að sjá í framtíðinni ekki þú og ekki börnin okkar. Sem fær mann svo aftur til þess að hugsa hvort að þetta stóra samsæri á himnum nái ekki alla leið til svörtustu Afríku, þar sem nánast ekkert er gert til að uppfræða Afríkubúa (svolítið stór alhæfing en tölurnar um alnæmis smitaða einstaklinga í ákveðnum ríkjum tala sínu máli). Ég spyr bara "má ekki koma í veg fyrir þetta? Eða er þetta tilraun ákveðna afla í heiminum til að losna við þetta fólk?
mánudagur, desember 16, 2002
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli