sunnudagur, október 12, 2008
Karl Marx er ekki hér.
Þegar ég labba út á hlað þá sé ég að hann Kalli Marx er löngu búinn að yfirgefa mig. Hvar er jafnréttið til handa þeim auðmjúku, ósérhlífnu og baráttuglöðu mönnum þessa lands. Síðan hvenær má konan bara taka bílinn. Hvernig get ég látið sjá mig á lítilli Vento druslu, eða jeppa sem á bara að nota á sumrin. Sjálfselskan í þessum konum alltaf. Næst tekur hún ábyggilega Patriciu Peppe jakkann minn. Ég hefði aldrei átt að fara í þetta fitusog.
Vladímir Lenín verslaði aldrei í GK
Ég verð að velja á milli þess að kaupa mér Kók eða bensín, ég vel bensín auðvitað en fæ samt bakþanka. Ætli ég hafi valið rétt, hversu langt ætli ég gæti labbað á Kók flösku. Ég nenni ekki að spá í þessu lengur enda kominn í GK. Það er útsala ég bara verð að fá mér skyrtu.
Fjodor Dostojevski
Mér líður eins og ég sé staddur í Uljanovsk í fyrrum Sovétríkjunum. Ljóstíran frá ljósastaurnum nær ekki inn til að lýsa upp herbergið mitt. Það er vöruskortur og enga ljósaperur að fá í landinu, nema gegn einhverjum krókaleiðum. Ég hef ekki efni á því að kaupa mér ljósaperu hvort sem er þannig að ég reyni að lesa í mykrinu. Eins gott að tölvur eru með innbyggðar perur sem lýsa upp skjáinn. Ég veit ekki hvernig ég myndi skrifa þetta öðru vísi.
Ég er farinn að hamstra dósamat.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
