föstudagur, febrúar 11, 2005

Hrafnista

Þegar ég fór að hugsa út í þetta þá verður það alltaf ljósara og ljósara í mínum augum. Bifröst er ekkert annað en Hranfnista. HÍ það líka, ef út í það er farið þá er. Biðstofur þerra sem nenna ekki að vinna. Ég las um eina stúlkuna sem á gamalsaldri nær hálf áttræðu (41) fór í lagadeild háskóla Íslands. Hún sagði að það væri vegna þess að hún nennti ekki að vinna. Þetta sjónarmið endurpeiglar kanski ekki sjónarmið hennar sjálfrar (vonandi var þetta meint eins og ég tók því, sem kaldhæðni), en þetta endurspeglar svolítið sjónarmið sem mætir mannir þegar út í atvinnulífið er komið. Sjálfur segi ég þetta þegar ég er spurður alvarlega "ertu enn í námi?"

Nú ef þetta er algilt sjónarmið hér á landi og í íslensku atvinnulífi er þá ekki sjálfsagt að sleppa kröfum um menntun. Þetta lærist nú hvort sem er allt er það ekki? Er einmitt ekki lífsins skóli besti skólinn. Það að hafa sett 10 - 12 fyrirtæki á hausinn er meira að segja bara nokkuð góður árangur og mönnum jafnvel hrósað fyrir.

Hvar segir það að starfsmaður sem unnið hefur hjá fyrirtæki í 10 ár, frá því að hann kláraði stúdent, sé betri eða verri starfsmaður en sá sem er að útskrifast með Bs.C - Ms.C eða Ph.d.

Hann er með 10 ára starfsreynslu hjá fyrirtækinu, hann er ekkert vitlaus strákur, nennir að vinna og á jú eftir að vinna hjá fyrirtækinu áfram það er öruggt. En er það ekki sökum þess að hann fær hvergi annarstaðar sambærilega vinnu. Hann er í raun þræll og sem slíkur rær hann lífróður hjá fyrirtækinu. En eins og sá sem ekki kann að synda þá þýðir ekki endalaust að baða út örmum í von um að allt gangi vel, vonandi drukkna ég ekki. En þetta er sú framtíðarsýn sem býður þeirra sem hlusta á raddir sem segja honum að fara að vinna. Það er líka þannig að þegar út í atvinnulífið er komið þá er það ekki hvað þú getur heldur hvern þú þekkir. Eins og sést kanski best hér

Hvaða hálfviti sem er getur stofnað fyrirtæki og jafnvel sloppið við gjaldþrot en það jafngildir aldrei því að fara í nám, eins það að fara í nám jafngildir því aldrei að hafa rekið fyrirtæki, en það kemst ekki hvaða hálfviti sem er í gegnum námið. Ef ég ætti svo að velja á milli, þá veldi ég þann einstakling sem getur lesið bækur og farið eftir leiðbeiningum.

En skoðum aðeins okkar hæstvirtu þingmenn. Hvað skildu margir þeirra í reynd hafa háskólagráðu samkvæmt vef Alþingis.

Anna Kristín Gunnarsdóttir = Stúdentspróf MA. Frönskunám við Université de Paris Cencier . Kennarapróf KHÍ. Diplóma í menntunarfræðum KHÍ . Meistaranám í menntunarfræðum KHÍ

Niðurstaða = Háskólapróf (?)

Arnbjörg Sveinsdóttir = Stúdentspróf MR . Laganám HÍ

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Ágúst Ólafur Ágústsson = Stúdentspróf MR. Lögfræðipróf HÍ. BA-próf í hagfræði HÍ

Niðurstaða = Háskólapróf

Árni Magnússon = Samvinnuskólapróf. Ýmis námskeið í rekstrarfræði, stjórnun og stjórnmálafræði frá HÍ og HA

Niðurstaða = EKKI MEÐ HÁSKÓLAPRÓF (sama hvað þessi námskeið voru löng)

Árni M. Mathiesen = Stúdentspróf Flensborgarskóla. Embættispróf í dýralækningum frá háskólanum í Edinborg. Próf í fisksjúkdómafræði frá Stirling-háskóla

Niðustaða = Háskólapróf

Ásta R. Jóhannesdóttir = Stúdentspróf MR. Nám í félagsvísindum og ensku HÍ (lokið ?). Þýskunámskeið í Lindau í Þýskalandi. Leiðsögumannanámskeið í Háskóla Íslands og á Spáni. Ýmis stjórnunarnámskeið hjá Háskóla Íslands og Iðntæknistofnun

Niðurstaða = Ekki búin með háskólapróf

Birgir Ármannsson = Stúdent MR. Embættispróf í lögfræði HÍ . Hdl. Framhaldsnám við King's College London

Niðurstaða = Háskólapróf

Birkir J. Jónsson = Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Nám í stjórnmálafræði HÍ

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Bjarni Benediktsson = Stúdentspróf MR. Lögfræðipróf HÍ. Nám í þýsku og lögfræði í ÞýskalandiLL.M. gráða (Master of Laws) frá University of Miami School of Law í Bandaríkjunum. Hdl. Löggiltur verðbréfamiðlari

Niðurstaða = Háskólapróf

Björgvin G. Sigurðsson = Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Suðurlands. BA-próf í sögu og heimspeki HÍ

Niðurstaða = Háskólapróf

Björn Bjarnason = Stúdentspróf MR. Lögfræðipróf HÍ. Hdl.

Niðurstaða = Háskólapróf

Bryndís Hlöðversdóttir = Stúdentspróf Flensborg. Lögfræðipróf HÍ

Niðurstaða = Haskólapróf

Dagný Jónsdóttir = Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík

Niðurstaða = Er ekki með háskólapróf

Davíð Oddsson = Stúdentspróf MR. Lögfræðipróf HÍ

Niðurstaða = Háskólapróf

Drífa Hjartardóttir = Landspróf frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Stundaði nám í MR og hefur síðan sótt ýmis námskeið (til lukku með það)

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Einar K. Guðfinnsson = Stúdentspróf MÍ. BA-próf í stjórnmálafræði frá háskólanum í Essex, Englandi

Niðurstaða = Háskólapróf

Einar Oddur Kristjánsson = Menntun (ekkert gefið upp)

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Einar Már Sigurðarson = Stúdentspróf MH. B.ed.-próf KHÍ. Diplóma í náms- og starfsráðgjöf HÍ

Niðurstaða = Háskólapróf

Geir H. Haarde = Stúdentspróf MR. BA-próf í hagfræði frá Brandeis-háskóla, Bandaríkjunum, . MA-próf í alþjóðastjórnmálum frá Johns Hopkins-háskóla, Bandaríkjunum. MA-próf í hagfræði frá Minnesota-háskóla, Bandaríkjunum

Niðurstaða = Háskólapróf (súpernörd)

Guðjón Hjörleifsson = Menntun (ekkert gefið upp)

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Guðjón A. Kristjánsson = Stýrimannanám á Ísafirði. Stýrimannaskólinn í Reykjavík.

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Guðlaugur Þór Þórðarson = Stúdentspróf MA. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ

Niðurstaða = Háskólapróf

Guðmundur Hallvarðsson = Farmannapróf Stýrimannaskólanum í Reykjavík

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Guðmundur Árni Stefánsson = Stúdentspróf Flensborgarskóla. Nám í stjórnmálafræði við Háskóla Ísland

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Guðni Ágústsson = Búfræðipróf Hvanneyri (kemur á óvart)

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Guðrún Ögmundsdóttir = Lauk námi í félagsfræði og félagsráðgjöf frá Roskilde Universitetscenter, framhaldsnám við sama skóla í fjölmiðlafræði, cand. comm.-próf

Niðurstaða = Með Háskólapróf

Gunnar Birgisson = Stúdentspróf MR. Próf í verkfræði frá HÍ. M.Sc.-próf í byggingaverkfræði frá Heriot-Watt University í Edinborg. Doktorspróf í jarðvegsverkfræði frá University of Missouri

Niðurstaða = Háskólapróf (með meiru og súpernörd)


Gunnar Örlygsson Hann hefur grunskólapróf (well done there) lék sér í stýrimannskólanum en útskrifaðist ekki og er með (diplóma) Próf í markaðs- og útflutningsfræðum (1 árs nám) frá dönskum skóla.

Niðurstaða= ekki háskólapróf

Halldór Ásgrímsson Samvinnuskólapróf. Löggiltur endurskoðandi. Framhaldsnám við verslunarháskólana í Björgvin og Kaupmannahöfn. (Sem hlýtur að þýða að hann hafi klárað þau þar sem hann er ráðinn lektor við viðskiptadeild Háskóla Íslands?).

Niðurstaða= Háskólapróf

Halldór Blönda
l Stúdentspróf MA 1959. Nám í lögum og sagnfræði við Háskóla Íslands. (Kláraði hann?) Ég segi nei, ekki nokkur maður sem útskrifast úr lögfræði og sagnfræði fer að vinna sem hvalaskurðamaður í 15 vertíðir svo ég gráti nú upphátt.

Niðurstaða= Stúdentspróf og góður hvalaskurðamaður

Helgi Hjörvar Stundaði nám í MH . Heimspekinám HÍ (væntanlega 25 árareglan til að fá það). En hér er ekkert talað um hvort hann hafi klárað stúdent eða háskólagráðuna.

Niðurstaða= Ekki háskólapróf

Hjálmar Árnason Stúdentspróf MH. Kennarapróf KHÍ. BA-próf í íslensku HÍ. M.Ed.-próf í skólastjórnun frá Bresku Kólumbíu-háskólanum í Kanada .

Niðurstaða= Háskólapróf (kanski of hæfur en ætti að geta stjórnað þessu barnaheimili betur en gert er í dag)


Jóhann Ársælsson Nám í skipasmíði, skipasmíðameistari.

Niðurstaða = Meistari í skipasmíð (seint kalla háskólapróf en meistari eingu að síður)

Jóhanna Sigurðardóttir Stúdent

Niðurstaða = Ekki með háskólapróf

Jón Bjarnason = Stúdentspróf MR. Búfræðipróf Hvanneyri. Búfræðikandidat frá Landbúnaðarháskólanum í Ási í Noregi.

Niðurstaða = Með háskólapróf

Jón Gunnarsson = (hver?????) Stundaði nám við ML (Lauk ekki). Fiskiðnaðarmaður og fiskitæknir frá Fiskvinnsluskóla Íslands. (er ekki eins gott að sleppa því að tala um menntun ef þetta er allt og sumt, það er líka fínt ef verkamenn landsins hafa fulltrúa á þingi)

Niðurstaða = Ekki háskólapróf en fisktæknir (hvað svo sem það er).

Jón Kristjánsson = Samvinnuskólapróf

Niðurstaða = Ekki háskólapróf

Jónína Bjartmarz = Stúdentspróf KHÍ( ég mana ykkur kennara til að tala um hversu miklu meira virði þetta er heldur en stúdent frá öðrum skólum, þetta er ekki og verður aldrei ígíldi háskólaprófs). Lögfræðipróf HÍ

Niðurstaða = Háskólapróf

Katrín Júlíusdóttir = Stúdent MK. Nám í mannfræði við Háskóla Íslands 1995-1999(hún hlýtur að hafa klárað). Námskeið í verkefnastjórn í hugbúnaðargerð hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands

Niðurstaða = Mögulega búin með háskólagráðu (kanski vantar ritgerðina?)

Kjartan Ólafsson = Próf frá Garðyrkjuskóla ríkisins og garðyrkjuskólunum í Söhus og Beder í Danmörku

Niðurstaða = Ekki búinn með háskólapróf (sama hvað menn segja, hann er garðyrkjufræðingur, talandi um að vera málsvari minnihlutans á þingi)

Kolbrún Halldórsdóttir = Verslunarpróf VÍ (ekki það sama og stúdent). Burtfararpróf frá Leiklistarskóla Íslands (ekki það sama og háskóli)

Niðurstaða = Ekki búin með háskóla

Kristinn H. Gunnarsson = (respect, sökum anarkistmans sem er í kringum hann, svo er hann klár ofan á allt annað, hélt hann væri nú frekar bóndadurgur í anda flestra miðjumanna) Stúdentspróf MR. BS-próf í stærðfræði HÍ

Niðurstaða = Háskólapróf

Kristján L. Möller = Próf frá Iðnskóla Siglufjarðar. Kennarapróf frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Ýmis námskeið á sviði félags- og íþróttamála í Noregi og Svíþjóð

Niðurstaða = Ekki með Háskólapróf

Lúðvík Bergvinsson = Skipstjórnarréttindi á 30 tonna skip. Stúdentspróf Fjölbrautaskólanum á Akranesi. Lögfræðipróf HÍ.

Niðurstaða = Háskólagenginn skipstjóri

Magnús Þór Hafsteinsson = Búfræðingur með fiskeldi sem sérgrein frá Bændaskólanum á Hólum. Cand. mag.-próf í fiskeldis- og rekstrarfræðum frá Héraðsháskóla Sogns og Firðafylkis í Noregi. Cand. scient.-próf í fiskifræði frá Háskólanum í Björgvin

Niðurstaða = Háskólapróf (ótrúlegt en satt, þá virðist maðurinn hafa góða menntun, hann mætti samt fara á námskeið í því hvernig maður á að tjá sig þá væri actually tekið meira mark á honum)

Magnús Stefánsson = Samvinnuskólapróf. Stúdentspróf Samvinnuskóla. Rekstrarfræðapróf Samvinnuháskólanum

Niðurstaða = 1/2 Háskólapróf en samt ekki

Margrét Frímannsdóttir = Gagnfræðapróf og landspróf frá Gagnfræðaskóla Selfoss. Nám í öldungadeild Fjölbrautaskóla Suðurlands

Niðurstaða = Ekki háskólapróf

Mörður Árnason = Stúdentspróf MR. BA-próf í íslensku og málvísindum HÍ og frá háskólanum í Ósló. Framhaldsnám í málvísindum, Sorbonne-7, París.

Niðurstaða = Er með Háskólapróf

Pétur H. Blöndal = Stúdentspróf MR. Diplom-próf í eðlisfræði, stærðfræði og tölvufræði við Kölnarháskóla. Diplom-próf í hagnýtri stærðfræði, líkindafræði, tölfræði, tryggingastærðfræði og alþýðutryggingum við Kölnarháskóla. Doktorspróf við sama háskóla.

Niðurstaða = Er með Háskólapróf (og gott betur)

Rannveig Guðmundsdóttir = Landspróf frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar. Námskeið í tölvufræðum í Ósló og Reykjavík

Niðurstaða = Ekki með Háskólapróf

Sigríður A. Þórðardóttir
= Stúdentspróf MA. BA-próf í íslensku, sagnfræði og grísku frá HÍ. Framhaldsnám við Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum

Niðurstaða = Er með háskólapróf

Sigurður Kári Kristjánsson = túdentspróf VÍ. Lögfræðinám við Kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu . Lögfræðipróf HÍ . Hdl.

Niðurtaða = Háskólamenntaður (mömmustrákur)

Sigurjón Þórðarson = Stúdentspróf MR. BS-próf í líffræði HÍ. Framhaldsnám í fráveitu- og vatnshreinsifræðum

Niðurstaða = Háskólamenntaður (furðuleg sérhæfing, örugglega mjög gagnleg)

Siv Friðleifsdóttir = Stúdentspróf MR. BS-próf í sjúkraþjálfun HÍ .

Niðurstaða = Háskólamenntun

Sólveig Pétursdóttir = Stúdentspróf MR. Lögfræðipróf HÍ. Hdl. 1980

Niðurstaða = Háskólamenntun

Steingrímur J. Sigfússon = Stúdentspróf MA. B.Sc.-próf í jarðfræði HÍ. Próf í kennslu- og uppeldisfræði HÍ (ætlaði sér ekki á þing)

Niðurstaða = Háskólamenntun (Einn mest menntaði bóndi landsins)

Sturla Böðvarsson = Gagnfræðapróf Skógaskóla. Sveinspróf í húsasmíði Iðnskólanum í Reykjavík. Raungreinapróf Tækniskóla Íslands. B.Sc.-próf í byggingatæknifræði Tækniskóla Íslands. (hverjum hefði dottið þetta í hug?)

Niðurstaða = Háskólamenntun (samt klúðrar hann vegamálum landsins)

Valgerður Sverrisdóttir = Próf frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Þýskunám við Berlitz-skóla í Hamborg , enskunám við Richmond-skóla í London

Niðurstaða = nám er ekki það sama og gráða þannig að við gerum ráð fyrir því að hún geti kennt ensku og þýsku og búið Ekki háskólanám

Þorgerður K. Gunnarsdóttir = Stúdentspróf MS. Lögfræðipróf HÍ

Niðurstaða = Háskólapróf

Þórunn Sveinbjarnardóttir = Stúdentspróf MR. Stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands og Johns Hopkins University, Paul H. Nitze School of Advanced International Studies

Niðurstaða = Háskólapróf

Þuríður Backman = Próf frá Hjúkrunarskóla Íslands. Framhaldsnám í hand- og lyflækningahjúkrun. Diplóma frá Norræna heilbrigðisháskólanum

Niðurstaða = Háskólapróf (?)

Ögmundur Jónasson = Stúdentspróf MR. MA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði Edinborgarháskóla, Skotlandi.

Niðurstaða = Háskólapróf

Össur Skarphéðinsson = Stúdentspróf MR. BS-próf í líffræði HÍ. Doktorspróf í lífeðlisfræði með fiskeldi sem sérgrein frá Háskólanum í East Anglia, Englandi,. Styrkþegi British Council við framhaldsrannsóknir 1983-1984.

Niðurstaða = Háskólapróf (og vel það)

Niðurstaða

Það eina sem hægt er að fullyrða er að í framsókn hljóta að vera mjög góðir eintaklingar og í sjálfstæðisflokknum allt of margir lögfræðingar.

Einnig má benda á það í ljósi þess óvenjuháa hlutfalls ómenntaðra að það er kanski ekki nema von að þeir samþykktu eftirlaunafrumvarpið. Hver mundi ráða þessa menn í sæmilegar stöður, þrátt fyrir að þeir hafi starfað á þingi.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér finnst nú mennta snobbið meiga aðeins passa sig núna. Mér finnst mjög mikilvægt að hafa blandaðann mannskap á þingi og fólk með ólíka og mismikla menntun þar. Fulltrúar okkar á þingi eiga að endurspegla sem best þjóðfélagið og því mikilvægt að hafa þar mikið og lítið menntað fólk. Það er hvort sem er alltaf hægt að leita til sérfræðinga og stundum er sérfræðingarnir lítið menntaðir. T.d. hverjir eru sérfræðingar í fátækt nema þeir fátæku (en ekki þeir ríku) og síðan þarf öðruvísi sérfræðinga þegar tala á um útfræslur á kvótakerfi o.s.frv.

Annars fannst mér mjög stuðandi þegar ég fór á atvinumiðlun (pricewater house coopers) þegar ég útskrifaðist með BA próf og vonaðist eftir því að þeir hefðu áhuga á að útvega mér vinnu (því fyrirtæki borga þeim fyrir það). En gæinn horfði bara á mig leit yfri CV mitt og sagði bara... En þú ert ekki með neina reynslu. Ég sem var að skríða út úr skóla og hef alla mína tíð unnið með skóla á sumrinn o.s.frv. Var allt í einu ekki nógu góður pappír sem ekki hafði reynslu og prófið var ekki nóg.

kk
Bóas

Nafnlaus sagði...

Þó svo að í mér sé mikill menntahroki þá er ég alveg sammála því að fólk á ekki endilega að vera með einhverja svaka titla, og gráður til að fara inn á þing. En það verður seint sagt að sá hópur sem núna er á þingi sé þverskurður á þjóðfélaginu. En það er eins og það gildi aðrar reglur innan þessara flokka en á öðrum stöðum. Sjá sjálfstæðismenn (lögfræðingar en það eru að stórum hluta verkamenn, verktakar sem kjósa flokkinn, iðnlærðir) sjá einnig framsókn þar sem menn vita varla hvað menntun er (en bændur kjósa víst þann flokk þannig!)

Nákvæmlega eins og þú ert krafinn um reynslu, menntunin er sem sagt ekki tekin sem nein reynsla. (þá verður að hafa það í huga að inn á þingi eru núna 5 þingmenn með enga starfsreynslu (og 3 af þeim með enga menntun.

Til hvers þá að mennta sig. Það hlýtur að vera þannig að til þess að öðlast reynslu þarf maður að vinna við ákveðið starf og til þess að vinna við það starf þarf menntun. Vilja menn semsagt fá starfsmenn til sín sem hlaupa í aðrar vinnur þegar þeim sínist svo.

Nafnlaus sagði...

Þessir þingmenn sem ekki hafa starfsreynslu er fulltrúar ungafólksins sem er í svipaðri aðstöðu og bara fínt að hafa slíkt fólk í bland.

En mér finnst þú draga menntunar mörkinn soldið við með eða án háskólaprófs eins og ekki sé önnur menntun til. Sameiginlegur félagi okkar er t.d. velmenntaður húsasmíðameistari. þó svo að það nám jafngildi ekki mikið meira en stúdentsprófi í lengd þá er það mjög fín menntun, með mikilli sérhæfingu og atvinnumöguleikum. Hann kann fullt af hlutum sem ég hef ekki hugmynd um. Hann er því mjög vel menntaður þó svo að hann hafi valið styttir og hagnýtari leið en langa háskóla lesningu.

En allt nám er maður að gera fyrir sjálfan sig engan annan finnst mér. Það er bara töluverður miskilingur fólgin í því að gera sjálfan sig að sérfræðingi í ákveðnu fagi á þeirri forsendu að það sé fyrir einhvern annan en mann sjálfan. Þegar menntuninni er síðan er lokið er komið að því ferli að selja sjálfan sig og menntun sína til hæstbjóðanda. Þá kemur í ljós hvort einhver hafi þörf fyrir þessa sjálfssprotnu þekkingaröflun.

Hagfræðilega þá er Húsasmíðameistarinn allavegana búinn að vinna mig fyrir löngu því hann er búinn að vera hala inn fínum mánaðarlaunum síðan hann var 20 ára. En ég bara búinn að vera að fletta bókum og þykjast vita eitthvað.

En ef enginn vill mig síðan að loknu námi þá ætla ég bara að stofna fyrirtæki og græða milljónir á sjálfum mér. Eða gefast bara upp og fara á þing og þvælast fyrir öðrum auðnuleysingjum.

Bóas

Nafnlaus sagði...

Rosalega hefur þú lítið að gera valli minn.

Svo er það M.Sc., hafa þessa hluti á hreinu ef þú ætlar á annað borð að tala um háskólanám.

Kv, Palli

Nafnlaus sagði...

Svakalega hef ég verið með mikinn menntahroka á sínum tíma....magnað. Batnandi mönnum besta að lifa...vona ég.