mánudagur, mars 24, 2003

WAR
Jæja þá er komið að því. Kaupið ykkur popp. Hellið kók í glasið og horfum á stríð í beinni. Sjáum hvernig þessi stórkostlegu stríðstól draga úr manndrápi og óþarfa dauða hermanna. Í raun og veru ætti þetta stríð að vera löngu búið samkvæmt áróðursdeild Bushlers en menn taka áhættu og reyna að safna aðeins vinsældarstigum. Ég verð að varpa fram þeirri spurningu sem hefur en og aftur horfið úr vörum okkar stórsniðugu fréttamanna víðsvegar um heiminn. Ef Sadam á gereyðingarvopn hvers vegna erum við að fara í stríð við hann. Ef Sadam á 8500 lítra af antrax því í ósköpunum eru Bandaríkjamenn að senda 250.000 mans í innan við 500 km fjarlægð frá þessari hættu. Er það fórnfýsi Bandaríkjamanna í að vernda heiminn fyrir hinu illa. Eru menn virkilega tilbúnir að senda sína eigin menn út í dauðann til að vernda lönd eins og Chad, Usbekistand og Ísland fyrir þeirri hættu sem er Írak.

Gæti það hugsast að, bara svona getgáta af minni hálfu, bandaríkjamenn vita fyrir víst hvað er til í Írak og hafa þar með fulla vitneskju um það í hversu mikilli hættu hermenn sínir eru. Það er að segja að það sé aðeins til venjubundin drápstæki í Írak en ekki gereyðingarvopn og málið snúist einfaldlega um að litli Bushler er að ljúka því sem pabbi kláraði ekki og um leið ná til sín nokkrum tunnum af olíu á hefðbundinn nýlenduherra hátt. Það eru mestu olíubirgðir í heimi undir Írak, það er að segja sem vitað er um. Æi ég veit ekki kanski snýst þetta bara um að vernda heiminn fyrir sjálfum sér. Fyrir mitt leit mætti þá alveg steypa Bushler af stóli um leið og menn taka Sadam.

Ég horfði á Jay hérna um kvöldið og sá þá einhvern stjórnmálamann sem ég kann ekki frekari skil á tala um að sniðganga franskar vörur vegna þessa að frakkar væru á móti stríðsrekstri bandaríkjamanna. Sem jú er flott og fínt en hann var að argnúast út í frakka fyrir að vera með mútur, helvít hörð átt að mínu mati þar sem bandaríkjamenn í fyrsta lagi tóku til baka lánsloforð til Tyrkja eftir að þeir hættu við að lána flugvelli sína ekki nóg með það heldur hafa þeir reynt að safna til sín hverju smáríkinu á fætur öðru og nú síðast nefna þeir Ísland á nafn sem stuðningsaðila sína 60 þjóðir nefndu þeir sem sína stuðningsaðila. Ríki eins og Ísland sem aldrei hafa gefið það út, mér vitandi, að þeir styðja þessar aðgerðir, undarlegur málatilbúningur hjá stórþjóð eins og bandaríkjunum. Hversu lágt eru menn tilbúnir að leggjast fyrir því að hefja stríðsrekstur, svona lágt.

fimmtudagur, febrúar 13, 2003

Bowling for Columbine
Ef það er einhver mynd sem þú ættir að sjá þá er það þessi mynd
If there is a movie you should see it's this one

Það gefur auga leið að ég er litaður í minni umfjöllun um Bandaríkin en hér er maður sem er búinn að vera í NRA alla sína tíð að fjalla um byssur og bandaríkjamenn. Virkilega góð heimildamyn. Besta mynd sem ég hef séð í áraraðir hvort sem það er kvikmynd eða heimildamynd.

miðvikudagur, febrúar 05, 2003

Kúrdar
Hér er komin ástæða númer eitt tvö þrjú og fjögur fyrir því að bandaríkin ættu að fara í stríð við Íraka. Hversvegna í ósköpunum er þessi hluti máls ekki viðraður á opinberum vetfangi. Í Írak eru 3 kúrdar á hverja 5 íraka. Það mun vera hlutfallslega stærsta þjóðarbrot sem ekki hefur nokkurn rétt hvorki til þess að stjórna landsvæði sínu (sem sjálfstjórnarhérað) né eitthvað um það að segja hvort tungumál þeirra er kennt í þeim héruðum sem þeir eru fjölmennastir sem eru fjöldamörg héruð í Írak. Allt frá þjóðarsamningum 1923 hefur Kúrdum verið lofað hinu og þessu en ekkert hefur verið gert í því að bæta kjör þeirra og stöðu á alþjólegum vetfangi. Undirskrifaðir voru samningar þess efnis að Kúrdum yrði útvegað land, þeim veittur sjálfstjórnaréttur en ekkert hefur gerst í 80 ár. Hversvegna? Stórveldi heimsins nú og þá hafa að yfirlögðu ráði komið í veg fyrir þetta. Fyrst voru það bretar sem stóðu að baki Írökum og hjálpuðu þeim á miskunarlausan hátt við að berja niður uppreisn Kúrda. Þar á eftir tóku Bandaríkjamenn við. Samskipti Íraka við Sovétríkin voru líka góð. Hvað liggur að baki? Það liggur eiginlega í augum uppi. Í kúrdistan eru einhver mestu auðæfi sem finnast hér á jörðu. Olía er þó ekki eina ástæðan því Kúrdistan er fjallendi og aðal forðabúr þess rafmagns sem Írakar nota. Barátta Kúrda hefur líka verið þögguð niður á alþjóðavetfangi því það hentar ekki stórveldunum að styggja Íraka. Það vildi ég óska að menn notuðu þetta sem átyllu frekar en að týna til tvo sprengjuodda sem geta borið efnavopn. 1988 voru 4000 kúrdar drepnir í einum vetfangi með efnavopna árás á Halabja í Kúrdistan. ÞETTA er árstæða fyrir innrás. Það er ekki ástæða að verja Kuveit sem er fyrrum olíuvinnslustöð í Írak sem Bretar breytu í land. Það er ekki ástæða að ógn stafar að heimnum vegna Sadams Huseins. Það er helur ekki ástæða að einhverjir tveir aðilar hafi talað saman um að blekkja eftirlitsmenn. Hvað vitum við hvað Bandaríkin búa yfir. Talað er um að tengsl séu á milli Al Qaeda og Sadams. Voru ekki til sannanir fyrir tengslum Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum og Al Qaeda. Var ekki búið að sjá það út að Pakistan aðstoðaði Al Qaeda.
Í mínum augum er Írak á sama stað og Ísrael.
Það sem mér finst endurspegla málstað kúrda og afstöðu þeirra gagnvar sínu heimalandi sem er í raun Írak er að þeir styðja ekki einu sinni áras Bandaríkjamanna á Írak.